Vinnslusamningur
Síðast uppfært 28. september 2026. BGL Ventures ehf., kt. 490806-0400, Nónhamri 8, 221 Hafnarfirði · help@inventra.is
Samningur þessi er hluti af skilmálum Inventra og gildir milli viðskiptavinar (ábyrgðaraðila) og BGL Ventures ehf., kt. 490806-0400, sem rekur INVENTRA (vinnsluaðila) um vinnslu persónuupplýsinga sem viðskiptavinur setur í kerfið, sbr. 28. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar og 25. gr. laga nr. 90/2018.
1. Viðfangsefni og tímalengd
Inventra vinnur persónuupplýsingar eingöngu til að veita þjónustuna (framleiðsla, pantanir, afhendingar, sölugreining og tengingar) meðan á áskrift stendur og þar til gögnum hefur verið eytt eftir uppsögn.
2. Tegundir upplýsinga og skráðra einstaklinga
- Starfsfólk viðskiptavinar (notendur, bílstjórar): nafn, netfang, sími, GPS-staðsetning meðan akstur er virkur, undirskriftir.
- Tengiliðir og viðtakendur viðskiptavinar: nöfn, heimilisföng, símanúmer, pantanir.
- Engar viðkvæmar persónuupplýsingar í skilningi 9. gr. GDPR eru ætlaðar í kerfinu.
3. Skyldur Inventra
- Vinna aðeins samkvæmt skjalfestum fyrirmælum viðskiptavinar — sem felast í notkun hans á kerfinu og stillingum þess.
- Tryggja að starfsfólk sem hefur aðgang sé bundið trúnaði.
- Viðhafa viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir (sbr. persónuverndarstefnu: dulkóðun, aðgangsstýring, aðskilnaður gagna, afritun, atvikaskrá).
- Aðstoða viðskiptavin við að svara beiðnum skráðra einstaklinga og við mat á áhrifum á persónuvernd eftir því sem við á.
- Tilkynna viðskiptavini um öryggisbrest án ótilhlýðilegrar tafar og eigi síðar en innan 48 klst. frá því að hans varð vart.
- Eyða eða skila öllum persónuupplýsingum að áskrift lokinni (innan 90 daga), nema lög krefjist varðveislu.
- Veita viðskiptavini upplýsingar sem þarf til að sýna fram á að skyldur séu uppfylltar.
4. Undirvinnsluaðilar
Viðskiptavinur veitir almennt samþykki fyrir þeim undirvinnsluaðilum sem taldir eru upp í persónuverndarstefnu. Inventra tilkynnir um nýja undirvinnsluaðila með minnst 30 daga fyrirvara og viðskiptavinur getur andmælt með rökstuðningi. Inventra leggur sömu skyldur á undirvinnsluaðila og felast í samningi þessum.
5. Flutningur út fyrir EES
Gagnagrunnur og keyrsla eru innan EES (Írland). Flutningur til undirvinnsluaðila utan EES byggir á stöðluðum samningsskilmálum ESB.
6. Ábyrgð viðskiptavinar
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að hafa heimild til vinnslunnar, t.d. að upplýsa bílstjóra um GPS-rakningu við akstur og viðtakendur um meðferð upplýsinga þeirra.
7. Gildistími
Samningurinn gildir jafnlengi og skilmálar Inventra. Ákvæði um trúnað og eyðingu gilda áfram eftir að áskrift lýkur.