Skilmálar
Síðast uppfært 29. september 2026. BGL Ventures ehf., kt. 490806-0400, Nónhamri 8, 221 Hafnarfirði · help@inventra.is
Þessir skilmálar gilda um notkun á INVENTRA (inventra.is og app bílstjóra), sem BGL Ventures ehf., kt. 490806-0400, Nónhamri 8, 221 Hafnarfirði („Inventra", „við") rekur. Með því að stofna aðgang eða nota þjónustuna samþykkir fyrirtækið sem stofnar aðganginn („viðskiptavinur") skilmálana.
1. Þjónustan
Inventra er hugbúnaður í áskrift fyrir framleiðendur ferskvöru: sniðmát og sölupantanir, framleiðsluplan, afhendingar með appi bílstjóra, innlestur sölutalna, rýrnun, sölugreiningu, spár og tengingar (t.d. bókhald og vefverslun). Við þróum þjónustuna áfram og getum bætt við, breytt eða hætt einstökum eiginleikum, en munum ekki draga verulega úr kjarnavirkni á greiddu tímabili.
2. Aðgangur og notendur
Viðskiptavinur ber ábyrgð á notendum sínum, að lykilorð séu varðveitt og að upplýsingar séu réttar. Netfang stofnanda er staðfest með tölvupósti. Viðskiptavinur tilkynnir okkur án tafar ef grunur er um óheimilan aðgang (help@inventra.is).
3. Prufutími, verð og greiðslur
Nýir viðskiptavinir fá 14 daga fría prufu. Við nýskráningu er greiðslukort skráð á greiðslusíðu Straums; ekkert er dregið á prufutímanum.
Verð fer eftir áskriftarleið, sem ræðst af fjölda skráðra verslana: Byrjun (allt að 5) 24.900 kr., Vöxtur (allt að 25) 49.900 kr. og Pro (ótakmarkað) 89.900 kr. á mánuði án virðisaukaskatts, sem bætist við (nú 24%), nema um annað sé samið skriflega. Allir eiginleikar og allir notendur eru innifaldir í öllum leiðum. Fari verslanir yfir mörk leiðar færist áskriftin sjálfkrafa í næstu leið við næstu greiðslu og er það tilkynnt í kerfinu.
Greitt er með greiðslukorti sem skráð er á öruggri greiðslusíðu Straums greiðslumiðlunar hf. Kortanúmer berast aldrei til Inventra; aðeins greiðslutákn (token) frá Straumi er geymt til mánaðarlegrar rukkunar. Fyrsta rukkun er við lok prufutíma og síðan mánaðarlega fyrirfram. Sé sagt upp fyrir lok prufutíma er ekkert rukkað.
Takist rukkun ekki reynum við aftur í nokkra daga. Sé ekki greitt getum við lokað aðgangi þar til greitt hefur verið — gögnin haldast óbreytt á meðan.
Við tilkynnum verðbreytingar með minnst 30 daga fyrirvara.
4. Uppsögn
Engin binding er í áskriftinni. Viðskiptavinur getur sagt upp hvenær sem er á síðunni Áskrift; ekkert er þá rukkað framar og aðgangur helst til loka greidds tímabils. Greidd tímabil eru ekki endurgreidd að hluta.
Við getum sagt upp þjónustunni með 30 daga fyrirvara, eða strax ef skilmálar eru brotnir alvarlega (t.d. misnotkun, tilraunir til að komast yfir gögn annarra eða vanskil).
5. Gögn viðskiptavinar
Viðskiptavinur á öll gögn sem hann setur í Inventra (vörur, viðskiptavinir, pantanir, afhendingar, sölutölur o.s.frv.). Við vinnum með þau eingöngu til að veita þjónustuna, sbr. vinnslusamning og persónuverndarstefnu.
Gögn eru aðskilin milli fyrirtækja. Viðskiptavinur getur tekið gögn út (Excel/CSV/PDF) hvenær sem er. Eftir uppsögn eyðum við gögnum innan 90 daga, nema viðskiptavinur óski eftir fyrr eða lög krefjist annars.
6. Inventra AI
Tillögur Inventra AI (magn, spár, ábendingar) eru ráðgjöf byggð á sögu, veðri og frídögum. Viðskiptavinur tekur sjálfur ákvörðun um framleiðslu og pantanir og ber ábyrgð á þeim.
7. Ásættanleg notkun
Óheimilt er að nota þjónustuna til ólöglegrar starfsemi, reyna að komast framhjá aðgangsstýringu, álagsprófa kerfið án samþykkis, afrita hugbúnaðinn eða endurselja aðgang án samnings við okkur.
8. Tiltækileiki og ábyrgð
Við leggjum okkur fram um að þjónustan sé tiltæk og örugg og tökum reglulega afrit, en ábyrgjumst ekki að hún verði ávallt villulaus eða án truflana. Áætlað viðhald fer fram utan háannatíma eins og kostur er.
Ábyrgð Inventra vegna tjóns sem tengist þjónustunni takmarkast við þá fjárhæð sem viðskiptavinur hefur greitt fyrir þjónustuna síðustu 12 mánuði. Við berum ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, s.s. rekstrartapi eða glötuðum hagnaði, nema um stórfellt gáleysi eða ásetning sé að ræða.
9. Tengingar við þriðju aðila
Þjónustan getur tengst kerfum þriðju aðila að vali viðskiptavinar (t.d. Payday, WooCommerce, Google Sheets). Um notkun þeirra gilda skilmálar viðkomandi aðila; við berum ekki ábyrgð á truflunum hjá þeim.
10. Breytingar á skilmálum
Við getum breytt skilmálum og tilkynnum verulegar breytingar með minnst 30 daga fyrirvara í tölvupósti eða í kerfinu. Áframhaldandi notkun eftir gildistöku telst samþykki.
11. Lög og varnarþing
Um skilmálana gilda íslensk lög. Ágreiningur sem ekki leysist með samkomulagi skal rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.