Pantanirnar verða til sjálfar.
Segðu einu sinni hvað fer í hverja verslun á hverjum vikudegi. Inventra býr til pantanir dagsins og þú breytir aðeins því sem víkur frá.
inventra.is/orders

Pantanir, framleiðsla, innkaup, afhendingar, gæðaeftirlit og sölutölur keðjanna í einu kerfi. Inventra AI þekkir reksturinn þinn og leggur til rétt magn fyrir hverja verslun.
Frá fyrstu pöntun að reikningi. Fyrir þau sem eru að byrja og þau sem eru farin að vaxa.
Pantanir, sniðmát, verðlistar og samningar
Plan dagsins, uppskriftir og lotur
Hráefnisþörf, birgjar og talning
Bílstjóraapp, leiðir og undirskrift
Hitastig, gátlistar, rekjanleiki og HACCP-bók
Raunsala, rýrnun og framlegð
Beint í Payday, einn á hverja verslun
Spáir magni, ráðleggur og býr til skjöl
Allar pantanir dagsins í einni töflu, vörur á móti verslunum. Breyttu magni beint og samþykktu planið. Þá staðfestast pantanirnar og afhendingarnar verða til.

Leiðin, undirskrift verslunar og myndir. Afhent magn fer beint í reikning og rýrnun.

Keðjurnar senda söluskýrslur á þitt netfang og Inventra les þær inn. Líka Excel.

Afhent á móti seldu. Sjáðu hvar varan fer í ruslið.

Pantanir næstu daga sinnum uppskriftir, mínus lagerinn. Innkaupapöntunin fer til birgisins í tölvupósti með einum smelli.

Mælaborðið, pantanirnar og framleiðslan í símanum.

Inventra AI lærir af þinni sölusögu: vikudögum, dögum frá afhendingu, veðri og frídögum. Það leggur til magn fyrir hverja verslun, sækir tölurnar fyrir þig og ráðleggur um framleiðslu og matvælaöryggi út frá þínum vörum. Þú samþykkir, ekkert vistast sjálfkrafa.
Bílstjórinn sér stoppin í röð og opnar leiðsögn með einum smelli. Á skrifstofunni sérðu bílana á korti í beinni, og leið hvers dags með afhendingunum.


Kerfið fylgir stillingu tækisins. Dragðu til að bera saman.



Bílstjórar fá appið með leiðinni og undirskrift. Framleiðslan sér planið og skrifstofan sér allt.

Í skannasölu áttu vöruna þar til hún er skönnuð í kassa. Inventra ber saman afhent og selt í hverri verslun, svo þú sérð hvar varan endar í ruslinu og minnkar magnið þar.

Hitastig kæla og frysta, gátlistar dagsins, lotunúmer og móttaka hráefna. Allt skráð í Inventra og skýrslan fyrir MAST er einn smellur.




Lýstu rekstrinum, hladdu inn myndum af eldhúsinu og svaraðu nokkrum spurningum. Inventra AI skrifar drög að hættugreiningu, mikilvægum stýristöðum, þrifaáætlun og rekjanleika út frá þínum vörum og mörkum. Þú lest yfir og samþykkir.
Reikningur fyrir hverja verslun í mánuðinum með einum smelli. Sendur í tölvupósti, sem rafrænn reikningur eða krafa í netbanka.
Pantanir úr vefversluninni fara beint í framleiðsluna og á bílstjórann. Pöntunin lokast þegar hún er afhent.
Söluskýrslur berast á þitt netfang í Inventra og lesast inn sjálfar. Excel, CSV og skýrslur úr kassakerfum.


Notarðu VAKTO fyrir vaktir og laun? Inventra sendir veltuna þangað um leið og afhending er staðfest, svo laun sem hlutfall af veltu sjást í rauntíma.
Allir eiginleikar í öllum leiðum. Allt teymið með, engin notendagjöld.
Án VSK. 14 daga frí prufa, engin binding. Við hjálpum við uppsetninguna.