Bjarni Lúðvíksson, stofnandi Inventra

Ég bjó til kerfið sem mig vantaði.

Bjarni Lúðvíksson, stofnandi Inventra

Ég rek framleiðslueldhús sem framleiðir ferskvöru fyrir verslanakeðjur á hverjum degi. Ég fann aldrei kerfi sem hélt utan um daginn frá pöntun til reiknings, og var einfalt fyrir mig, bílstjórana og framleiðsluna.

Inventra er svarið við því sem fór í taugarnar á mér árum saman.

Ég vissi ekki hvað seldist í raun.

Nú berast sölutölur keðjanna sjálfkrafa og ég sé rýrnunina per vöru og verslun. Þar sem varan endar í ruslinu minnka ég magnið.

Pantanir voru í Excel og tölvupósti.

Nú verða pantanir dagsins til úr sniðmátum og framleiðsluplanið er ein tafla.

Afhendingarseðlar týndust.

Nú staðfestir bílstjórinn í appinu, verslunin kvittar á skjáinn og afhent magn fer beint í reikning.

Hitastigið var skráð á blað á kælihurðinni.

Nú eru hitastig, gátlistar og lotunúmer í Inventra, og skýrslan fyrir eftirlitið er einn smellur.

Reikningarnir tóku heilan dag í mánaðarlok.

Nú býr einn smellur til reikning fyrir hverja verslun í Payday, úr sölutölunum.

„Ég vildi vita hvað selst, hvað fer til spillis og hvað það kostar. Á hverjum degi, ekki í lok mánaðar.“
Bjarni Lúðvíksson

Prófaðu Inventra í þínum rekstri.

14 dagar frítt, engin binding. Eða sendu mér línu á hello@inventra.is.

Prófa frítt