Persónuverndarstefna
Síðast uppfært 2. október 2026. BGL Ventures ehf., kt. 490806-0400, Nónhamri 8, 221 Hafnarfirði · help@inventra.is
Hér kemur fram hvaða persónuupplýsingar BGL Ventures ehf. (kt. 490806-0400), sem rekur INVENTRA, vinnur, í hvaða tilgangi, hvar þær eru geymdar og hver réttindi þín eru. Stefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR).
1. Hlutverk Inventra
Ábyrgðaraðili: Inventra ber ábyrgð á upplýsingum um notendur kerfisins (aðgangar, innskráning, áskrift og samskipti við okkur).
Vinnsluaðili: Upplýsingar sem viðskiptavinir setja í kerfið um sína viðskiptavini, viðtakendur og starfsfólk (t.d. nöfn og heimilisföng viðtakenda vefpantana, GPS-staðsetning bílstjóra) vinnur Inventra fyrir hönd viðskiptavinar, samkvæmt vinnslusamningi. Viðskiptavinurinn er þá ábyrgðaraðili.
2. Hvaða upplýsingar
- Notendur: nafn, netfang, sími (valkvætt), hlutverk, dulkóðað lykilorð, tími síðustu innskráningar og atvikaskrá yfir aðgerðir í kerfinu.
- Áskrift: nafn fyrirtækis, netfang fyrir reikninga, greiðslutákn frá Straumi og yfirlit korts (tegund, síðustu 4 tölustafir, gildistími). Kortanúmer berast aldrei til Inventra.
- Bílstjórar: GPS-staðsetning meðan „Hefja akstur" er virkt í appinu (aldrei utan aksturs), undirskriftir og myndir við afhendingu.
- Viðtakendur vefpantana: nafn, heimilisfang, sími og afhendingartími, sótt úr vefverslun viðskiptavinar.
- Tæknilegar upplýsingar: IP-tala og vafraupplýsingar í kerfisskrám vegna öryggis.
3. Tilgangur og heimild
Til að veita þjónustuna og efna samning (aðgangur, afhendingar, reikningar), til að innheimta áskrift, vegna öryggis og misnotkunarvarna (lögmætir hagsmunir) og til að uppfylla lagaskyldur (t.d. bókhaldslög). Við seljum aldrei persónuupplýsingar og notum þær ekki í auglýsingaskyni.
4. Hvar gögnin eru geymd
Gagnagrunnur og keyrsla kerfisins eru á Írlandi (innan EES). Afrit eru tekin reglulega og dulkóðuð.
5. Undirvinnsluaðilar
- Supabase (gagnagrunnur og skráageymsla, Írland).
- Vercel (hýsing og keyrsla, Írland).
- Straumur greiðslumiðlun hf. (greiðslur, Ísland).
- Resend (tölvupóstsendingar, Bandaríkin — staðlaðir samningsskilmálar ESB).
- Anthropic (Inventra AI — aðeins þegar viðskiptavinur biður um AI-yfirferð; gögn eru ekki notuð til þjálfunar; Bandaríkin — staðlaðir samningsskilmálar ESB).
- OpenStreetMap/Nominatim (uppfletting hnita heimilisfanga) og MET Norway (veðurspá) — engar persónuupplýsingar aðrar en heimilisföng afhendingarstaða.
- Tengingar sem viðskiptavinur velur sjálfur, s.s. Payday, WooCommerce og Google Sheets.
6. Varðveisla
Gögn eru varðveitt meðan viðskiptavinur er í áskrift. Eftir uppsögn eyðum við þeim innan 90 daga, nema lög krefjist lengri varðveislu (t.d. bókhaldsgögn um áskrift í 7 ár). GPS-punktar úr akstri eru geymdir í að hámarki 12 mánuði. Afrit eyðast sjálfkrafa innan 30 daga.
7. Vafrakökur
Inni í kerfinu notar Inventra aðeins nauðsynlegar vafrakökur: innskráningu, tungumál, útlit (ljóst/dökkt) og síðasta valda tímabil.
Á opna vefnum (inventra.is) notum við Google Analytics til að mæla heimsóknir — aðeins ef þú leyfir það í borðanum neðst á síðunni. Ef þú hafnar er ekkert sett. Engar auglýsingakökur. Þú getur breytt vali þínu með því að hreinsa vafrakökur/gögn vefsins.
8. Spjall á heimasíðunni
Skilaboð í spjallinu á inventra.is eru vistuð svo samtalið haldist og svarað sé. Svör aðstoðarinnar eru búin til af Anthropic (Claude) út frá upplýsingum um Inventra. Ef þú biður um manneskju skráum við nafn og netfang sem þú gefur upp til að svara þér. Spjallþráðum er eytt sé þess óskað (help@inventra.is).
9. Öryggi
Dulkóðuð tenging (HTTPS), dulkóðuð lykilorð, aðgangsstýring eftir hlutverkum, aðskilin gögn milli fyrirtækja, læsing eftir endurteknar rangar innskráningar og atvikaskrá. Leyndarmál tenginga (t.d. API-lyklar vefverslunar og greiðslutákn) eru geymd dulkóðuð.
10. Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða eytt, andmæla vinnslu, takmarka hana og fá þær afhentar (flutningsréttur). Sendu beiðni á help@inventra.is. Ef upplýsingarnar eru í kerfinu fyrir hönd viðskiptavinar (t.d. vinnuveitanda þíns) áframsendum við beiðnina til hans.
Þú getur kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).
11. Samband
BGL Ventures ehf., kt. 490806-0400, Nónhamri 8, 221 Hafnarfirði · help@inventra.is